Miklar byggingaframkvæmdir í sveitarfélaginu
Í sumar sl. var úthlutað fjórum lóðum fyrir íbúðarhús á Leirusvæðinu á Höfn og er bygging þess fyrsta hafin. Það er vissulega ánægjulegt að sjá þessar framkvæmdir en samkvæmt upplýsingum byggingafulltrúa eru um 8 ár frá því íbúðarhús var byggt á Höfn. Í fyrra var steypt upp íbúðarhús á Breiðabólsstað í Suðursveit en byggingu þess er ekki lokið. Ný lögreglustöð er í byggingu og lokið er við byggingu löndunarhúss á Óslandsbryggju. Samþykkt hefur verið stækkun á þjónustuhúsi við Flosalaug í Svínafelli í Öræfum. Þá hefur eitthvað verið um framkvæmdir við sumarhúsabyggingar í Stafafellsfjöllum en frekari upplýsingar um þær lágu ekki fyrir alveg núna.
Merkasta byggingaframkvæmdin á staðnum sem lokið var við sl.vor er sundlaugin sem er glæsilegt mannvirki og hlýtur almennt lof þeirra sem þar koma, reyndar á eftir að byggja tengibyggingu milli sundlaugarinnar og Heppuskóla. Atvinnuástand er gott og ekki annað að heyra en bæjarbúar séu bjartsýnir og framkvæmdahugur í mönnum.




Skrifa athugasemd