Nóvember
Hanna Jónsdóttir í Miklagarði
Hanna Jónsdóttir í Miklagarði
Hanna Jónsdóttir í Miklagarði
Mynd 1 af 2
1 2

04.11.2009 Nóvember

Unnið að hönnun og nýsköpun í Miklagarði

Hanna Jónsdóttir hefur haft aðstöðu í Miklagarði frá því sumar en einnig unnið í Reykjavík og Hollandi.  Sjálf útskrifaðist hún frá The Design Academy í Eindhoven í Hollandi á síðasta ári.  Síðan þá hefur hún sett upp hönnunar- og listasýningar, t.d. á Humarhátíð og í Gallerí Sævars Karls á Menningarnótt og er nýkominn af árlegri hönnunarsýningu í Eindhoven.  Útskriftarverkefni Hönnu voru nælur úr hreindýrshorni og hefur fengið mikla athygli, m.a. í tímaritinu Vogue Living af sýningu efnilegustu hönnuða Evrópu 2009 og eru núna á leið til Japans á sýningu. 

Í haust bauð Hanna þeim Valentina-Maria Mächler og Michou-Nanon de Bruijn til að starfa með sér í einn mánuð í aðstöðunni sem hún hefur í Miklagarði.  Allar hafa þær bakgrunn í alþjóðlegri hönnun.  Hanna og Michou var saman í skólanum í Eindhoven og einbeittu sér að tilraunakenndri - og nútímahönnun.  Valentina er heimildamyndagerðarsmiður og fylgist náið með framgangi verkefnis þeirra Hönnu og Michou.  Markmið verkefnisins er að skapa nýja ímynd fyrir garðyrkju á Hornafirði þar sem bæði gæði grænmetis og heilsufar íbúana eru tekin til skoðunar.  Þær vilja innleiða nýjar leiðir í garðyrkju með því að nýta betur umhverfi og orkuauðlindir staðarins. 

Verkefnið kemur til með að þróast á næstu árum á margan hátt því stefna þeirra er að kanna betur allar hliðar og fá sérfræðinga í lið með sér sem hafa þekkingu á ólíkum orkukostum, lýðheilsu og jarðvegi.

Á þessu ári hefur mikil hönnunar- og listastarfsemi átt sér staði í Miklagarði og er húsið smám saman að öðlast nýtt hlutverk.  Ungt fólk sækir í þá aðstöðu sem þar er fyrir hendi til að vinna að ýmsum lista- og hönnunarverkefnum.  Skemmst er að minnast sýninga á Humarhátíð í sumar þar sem fjórir ungir hönnuðir og listamenn settu upp sýningar.

Verkefni þeirra Hönnu, Michou og Valentinu er rökrétt framhald af þeirri grósku sem er til staðar í matvælaframleiðslu og hönnun svæðinu.

Heimasíða Hönnu.  http://www.hannajonsdottir.com/ 

Heimasíða Michou:  http://www.nanon.info/ 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica