1500 kg urðu að 45 tonnum
Sagt var frá því hér á vefnum að kartöflubóndinn Hjalti Egilsson hefði sáð kartöflum, fyrir uppskeru nr. tvö, þegar búið var að taka upp í sumar en það er í fyrsta sinn sem það er gert hér á landi svo vitað sé. Tilraunin gekk þó ekki alveg eins og skyldi því gæsirnar fundu þessi gómsætu grös sem þarna voru komin og voru iðnar við að kroppa þau upp. Við náðum þó að ná dálitlu og þetta voru prýðilegar kartöflur þó ekki væru þær stórar sagði Hjalti, tilraunin sýndi okkur að þetta er alveg hægt hér ef veðráttan er hagstæð en þá verður að gera ráð fyrir sáningu tvö í tíma og hafa útsæði tilbúið eins dúk til að breiða yfir garðinn svo gæsirnar éti ekki allt og við stefnum á að reyna þetta aftur næsta sumar.
Hjalti segir að kartöfluuppskeran í sumar hafi að öllu leiti verið vel heppnuð, kartöflurnar jafnar að stærð og margar undir hverju grasi. Við vorum að sjá uppskeru á gullauga sem fór í 45 tonn á hektara þar sem sáð var 1500 kg. Það er svona það besta og það er sjalgæft að fá svona uppskeru hér á landi enda var sumarið hér einstaklega hagstætt fyrir hverskonar ræktun.





Skrifa athugasemd