Október
Þuríður Harpa Sigurðardóttir
Þuríður Harpa Sigurðardóttir

31.10.2009 Október

Styrktarbingó

 

Núna á sunnudaginn 1. nóv. stendur kvenfélagið Vaka í Nesjum fyrir styrktarbingói í Mánagarði. Allur ágóði af bingóinu rennur óskiptur til Þuríðar Hörpu Sigurðardóttur.

Þuríður Harpa féll af hesti 2007 með þeim afleiðingum að hún lamaðist frá brjósti og útlit var fyrir að hún yrði bundin hjólastól það sem eftir væri ævinnar.  En hún lagði ekki árar í bát og hóf leit að meðferð sem gæti hjálpað henni. Á Indlandi fann hún lækni nokkun, dr. Geeta Shroff,  sem hefur þróað aðferð sem byggir á notkun stofnfruma úr fóstrum.  Eftir að hafa farið yfir gögn Þuríðar taldi  dr. Greeta Shroff að meðferðin gæti gagnast henni. Þuríður Harpa fór því til Indlands og hóf meðferð. Gera má ráð fyrir að meðferðin taki 3 ár og að Þuríður þurfi að fara 2-3 sinnum á ári og dvelji 1-2 mánuði í senn á Indlandi.  Þessi meðferð er dýr og áætlað að kostnaður gæti verið 25-30milljónir. Meðferðin hefur þegar sýnt árangur og hægt er að fylgjast með á bloggsíðu hennar http://www.oskasteinn.com/.

Þuríður Harpa er uppalin í Nesjum, dóttir Sigríðar Sigurbergsdóttur og Sigurðar Björnssonar. Er það kvenfélaginu Vöku sönn ánægja að geta stutt við bakið á sveitungum sínum og boðið öllum Hornfirðingum uppá fyrirtaks skemmtun í leiðinni. Fyrirtæki í sveitarfélaginu og víðar hafa gefið glæsilega vinninga m.a. flug og gistingu í Reykjavík, matarkörfu, út að borða og fjölmargt annað. Viljum við hvetja alla til að mæta sunnudaginn  1.nóv.  í Mánagarð, spila bingó og skemmta sér. Bingóið hefst kl 15.00

Kvenfélagið Vaka

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica