Október
Viðburðadagatalið
Viðburðadagatalið
Mynd 1 af 2
1 2

30.10.2009 Október

Alþjóðleg athafnavika á Íslandi

„ Lausn vandamála felst í athafnasemi “

 

Nú styttist í alþjóðlega athafnaviku sem stendur yfir dagana 16. til 22.nóv. Í miðrými Nýheima er búið að setja upp stórt viðburðadagatal þar sem skráðir verða viðburðir vikunnar hér á Höfn.

Markmiðið er að fá flesta til að taka þátt í þessari viku, hafa gaman af henni og njóta þeirra viðburða sem í boði verða. Viðburðir þurfa ekki að vera neitt flóknir og allir geta tekið þátt ! Sem  dæmi geta fyrirtæki verið með opið hús eða kynningu á starfsemi sinni eða gert eitthvað sérstakt í tilefni vikunnar.  Félagasamtök geta verið með, kynningar, opna fundi, opið hús eða opnar æfingar svo eitthvað sé nefnt.

 Í miðrými Nýheima verður ýmislegt brallað þessa viku og margir möguleikar á athafnasemi. En þar verður prjónaður kærleikstrefill úr afgangsgarni, málað verður málverk þar sem bæjarbúum gefst kostur á því að mála hluta af, þar verða hljóðfæri ef einhverjir vilja spila eða syngja, ræðukassi ef einhver vill koma fram og tala, lesa ljóð eða hvað sem mönnum hugnast, þarna verður hægt að spila myndbönd eða vera með slæðusýningar o.fl. skemmtilegt.  

Athafnateygjan fer af stað á mánudeginum en hún gengur manna á milli og þegar menn hafa athafnast og skráð viðburð skal hún afhent næsta manni með loforði um athafnasemi. Snilldarlausnir hugmyndakeppni framhaldskólana hefst líka á mánudeginum, sú keppni gengur út á það að skapa verðmæti úr þeim hlutum sem nemendur fá afhent og gera stutt skýringarmyndband um það.

Mikilvægt er að skrá viðburði en það má gera hjá: http://www.athafnavika.is/ , Björk bjorkp@nmi.is, og Nínu nina@tna.is . Þar má einnig fá frekari upplýsingar um athafnavikuna.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica