Október
Árni Rúnar Þorvaldsson
Árni Rúnar Þorvaldsson
bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar

30.10.2009 Október

Gefur ekki kost á sér í næstu bæjarstjórnarkosningum

 

Það styttist í sveitarstjórnarkosningar en þær verða haldnar 29. maí í vor. Fljótlega skýrist hverjir gefa kost á sér til starfa í bæjarstjórn og framboðin fara að taka á sig mynd. Undirritaður hefur starfað sem bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Hornafirði á yfirstandandi kjörtímabili. Á kjörtímabilinu hef ég m.a. gegnt störfum forseta bæjarstjórnar og formanns bæjarráðs. Í störfum mínum fyrir sveitarfélagið hef ég kynnst fjölda skemmtilegra einstaklinga; kjörnum fulltrúum, embættismönnum og íbúum um allt sveitarfélagið. Það er dýrmæt reynsla og í raun einstakt að fá tækifæri til þess að kynnast svo mörgum sem hafa hag sveitarfélagsins að leiðarljósi. Þó skoðanir um leiðir kunni stundum að vera að skiptar þá eru markmiðin þau sömu hjá öllum sem koma að málefnum sveitarfélagsins – að efla og styrkja samfélagið. Samstaðan um brýnustu og stærstu málin hefur verið aðalsmerki bæjarstjórnar Hornafjarðar og það er von mín að svo verði áfram.

Af persónulegum ástæðum hef ég ákveðið að gefa ekki kost á mér í næstu sveitarstjórnarkosningum. Fjölskyldan mun flytjast búferlum næsta sumar þar sem undirritaður hefur ákveðið að setjast á Háskólabekk á nýjan leik. Ég mun því með nokkrum söknuði segja skilið við sveitarstjórnarmálin hér á Hornafirði eftir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Enda er mikil eftirsjá í því að eiga þess ekki kost lengur að eiga samskipti og samvinnu við þann fjölda einstaklinga sem vinnur að málefnum sveitarfélagsins.

 

Árni Rúnar Þorvaldsson

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica