Október
Öryggi rjúpnaveiðimanna
fréttatilkynning frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu
Rjúpnaveiðitímabilið hefst núna 30. október. Stendur það í 18 daga en síðasti leyfilegi veiðidagurinn er 6. desember. Á þessu tímabili má einungis veiða frá föstudegi til sunnudags. Í nóvember í fyrra voru björgunarsveitir félagsins kallaðar út 11 sinnum til leitar og aðstoðar við rjúpnaskyttur. Félagið vill því vekja athygli á nokkrum góðum ferðareglum sem rétt er að hafa í huga áður en lagt er af stað í veiðiferðina.
Almennar umgengnireglur við skotvopn:
- Geymið byssu og skot á læstum stöðum.
- Ekki aka á veiðistað með byssuna hlaðna.
- Hafið öryggið ávallt á þegar gengið er með byssu.
Ferðareglur rjúpnaskyttunnar:
- Fylgist með færð og veðurspá.
- Gerið ferðaáætlun og skiljið hana eftir hjá aðstandendum.
- Kynnið ykkur vel það svæði sem ferðast á um.
- Hafið með góðan hlífðarfatnað.
- Takið með sjúkragögn og neyðarfæði.
- Fjarskipti þurfa að vera í lagi, gps, kort, áttaviti og talstöð/sími og kunnátta verður að vera til staðar til að nota þau.
- Athugið að farartækið sé í góðu ásigkomulagi áður en lagt er af stað.
- Ferðist ekki einbíla.
- Takið með grunnviðgerðardót fyrir farartækið, skóflu, kaðal og festið allan farangur.
- Munið að akstur og áfengi fer ekki saman.
- Ef ferðast er í bíl spennið beltin og notið hjálma, brynjur og annan hlífðarfatnað ef farið er um á vélsleða.
- Látið vita reglulega af ykkur og skráið nafn og hvert ferðinni er heitið í bækur í fjallaskálum.
- Ef ekki er hægt að komast lengra á bílnum bíðið í honum þar til hjálp berst, það er mun. auðveldara að finna bíl heldur en fólk á göngu og bíllinn veitir skjól.
- Betra er að snúa við í tíma heldur en að koma sér í ógöngur





Skrifa athugasemd