Fyrsta skóflustungan tekin að byggingu Hólabrekkuafurða
Þann 15. október sl. tók Anna í Hólbrekku, fyrstu skóflustungu að byggingu Hólabrekkuafurða sem mun hýsa vinnustofu, vinnslu og pökkunaraðstöðu fyrir grænmeti. Skóflustungan var tekin á gröfunni hans Óla á Tjörn en hann sá um að taka fyrir byggingunni.
Eins og áður hefur komið fram eru Hólabrekkuafurðir ehf , lítið rekstrarfélag sem hjónin í Hólabrekku stofnuðu í þeim tilgangi að reka atvinnu og endurhæfingu fyrir heimilismenn í Hólabrekku. Starfsemin mun byggjast á framleiðslu og sölu á lífrænu grænmeti svo og handverki úr lítt verðmætu hráefni af sauðfénu. Starfsemin hefur verið í þróun í nokkur ár og er grænmetisframleiðslan komin lengst á veg.
Þessa dagana er mikil þróunarvinna í gangi, eins og forsuða og frysting, þar sem grænmetið er gufusoðið í eigin safa, snöggkælt og fryst. Þá er líka verið að þróa sýringu á hvítkáli, og hver veit nema pesto úr grænkáli, líti dagsins ljós. Það er Matís og hann Gummi, sem kenndur er við það fyrirtæki sem leiðir þessa þróunarvinnu sem síðar leiðir vonandi til framleiðslu.
Undanfarna laugardaga hafa forsvarsmenn Hólabrekkuafurða verið með grænmetið til sölu á markaðnum í Pakkhúsinu, þar sem þau hafa einnig boðið fólki að smakka og gefið uppskriftir af ýmsum réttum úr hráefninu. Þar sem viðskiptavinir hafa gefið góðan róm að gæðum og verði grænmetisins, biðja forsvarsmenn Hólabrekkuafurða íbúa Hornafjarðar að hugsa vel til þeirra næstu laugardaga, þar sem þau verða á markaðnum í Pakkhúsinu með afurðir sínar til sölu. Allt grænmetið er lífrænt ræktað og hefur vottun sem slíkt, þannig að viðskiptavinir Hólabrekkuafurða eru ekki bara að kaupa grænmeti, heldur einnig að styrkja sína eigin heilsu með því að fá það lífrænt ræktað og beint upp úr garðinum, um leið og þeir styrkja atvinnu og hæfingu heimilismanna á sambýlinu í Hólabrekku.




Skrifa athugasemd