Jöklaráðstefna á Höfn um helgina
International Glaciological Society - Nordic Branch Meeting 2009
Næstu helgi, frá 29. okt. – 1. nóv., verður haldinn hér á Höfn fundur jöklafræðinga og námsmanna frá Norðurlöndunum sem eru félagar í Alþjóðlega jöklarannsóknafélaginu.
Þessi hópur hittist árlega og kynnir rannsóknir sem þeir stunda og ákveðið var að þessu sinni að sækja Ísland heim. Vel þótti fara á því að halda fundinn í ríki Vatnajökuls og varð Höfn í Hornafirði fyrir valinu.
Áætlaður fjöldi þátttakenda er um 70 manns, að stærstum hluta nemendur
í jöklafræðum og tengdum greinum frá Norðurlöndunum, en auk þeirra kennarar og starfandi vísindamenn. Fjallað verður um rannsóknir á afkomu jökla og viðbrögð þeirra við loftslagsbreytingum, jöklajarðfræði, eldgos undir jökli, jökulhlaup, mælitækni við jöklarannsóknir og margt fleira.
Að ráðstefnunni lokinni verður skoðunarferð með hópinn meðfram suðurströndinni þar sem ráðstefnugestum gefst kostur á að skoða margbreytileika íslenskra jökla og jöklajarðfræði.
Ráðstefnan er í Nýheimum og fara fyrirlestrarnir fram á ensku.





Skrifa athugasemd