Vel heppnað ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga
Ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga var haldið 15. og 16. október sl á Höfn í Hornafirði. Þingið tókst í alla staði mjög vel.
Á þinginu voru haldnir aðalfundir SASS, Atvinnuþróunarfélags Suðurlands, Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Skólaskrifstofu Suðurlands og Sorpstöðvar Suðurlands. Á ársþinginu voru samþykktar fjölmargar ályktanir um hin ýmsu hagsmunamál landshlutans. Þá var kosið í stjórnir, ráð og nefndir. Í stjórn SASS voru kosin Sveinn Pálsson Mýrdalshreppi formaður, Aðalsteinn Sveinsson Flóahreppi varaformaður, Guðmundur Þór Guðjónsson Hveragerðisbæ, Margrét Katrín Erlingsdóttir Sveitarfélaginu Árborg, Elliði Vignisson Vestmannaeyjabæ, Ólafur Eggertsson Rangárþingi eystra og Árni Rúnar Þorvaldsson Sveitarfélaginu Hornafirði. Aðalsteinn, Ólafur og Árni Rúnar eru nýir í stjórn og komu í stað Sigurðar Inga Jóhannssonar, Unnar Brár Konráðsdóttur og Reynis Arnarsonar.
Sjá nánar Ályktanir ársþings SASS-2009 (pdf):





Skrifa athugasemd