Október
Ragnar SF550
Ragnar SF550
Ragnar SF550

17.10.2009 Október

Ragnar SF-550 frá Hornafirði  aflahæstur smábáta á sl. fiskveiðiári með 1.329 tonn.

Frétt frá Landssambandi smábátaeigenda

Á aðalfundi LS sem nú stendur yfir var upplýst að Ragnar SF-550 frá Hornafirði hefði orðið aflahæstur smábáta á sl. fiskveiðiári með 1.329 tonn.  Skipstjóri á Ragnari er Arnar Þór Ragnarsson.   Í máli framkvæmdastjóra LS kom fram að það hefði borið til tíðinda að hornfirskur smábátur hefði nú rofið áralanga einokun bolvískra smábáta um mesta afla smábáta á hverju ári.Örn óskaði  Arnari Þór og áhöfn hans til hamingju með þennan frábæra árangur og sagði hann vera kominn í flokk ofurfiskimanna innan Landssambands smábátaeigenda eftir gríðarlega harða keppni við Geira á Sirrý (Sigurgeir Þórarinsson), sem hampaði titlinum mesti fiskimaður smábátaflotans 2008, það munaði aðeins 4 tonnum á þeim félögum.   

Örn færði Arnari blómvönd frá landssambandinu af þessu tilefni og fundarmenn fögnuðu með dynjandi lófaklappi.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica