Nýr frumkvöðull í frumunni hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands á Höfn
Nýsköpunarmiðstöð Íslands á Hornafirði býður upp á aðstöðu fyrir frumkvöðla. Markmiðið með því er að skapa frumkvöðlum þekkingarumhverfi, aðstöðu og umgjörð til að vinna að nýsköpun og veita þeim faglega þjónustu og stuðning við framgang hugmynda sinna.
Undanfarið hafa tvö fyrirtæki verið með aðstöðu í Frumunni en það eru; Náttúrulega ehf. og Ríki Vatnajökuls. Nú eru tímamót hjá Náttúrulega ehf. en fyrirtækið er nú útskrifað úr Frumunni og starfsemin flyst til að byrja með í húsnæði Þjónustumiðstöðvar SKG við tjaldsvæðið. Náttúrulega er í eigu Rannveigar Einarsdóttur og Magnúsar Jónassonar. Fyrirtækið sérhæfir sig í hönnun og gerð fræðsluskilta og upplýsingabæklinga, merkinga á gönguleiðum, skipulagi ferðamannastaða og ýmsum umhverfisverkefnum. Frekari upplýsingar um Náttúrulega má nálgast á heimasíðunni natturulega.is. Óskum við Rannveigu góðs gengis á nýjum stað.
Nýr frumkvöðull hefur fengið aðstöðu á frumkvöðlasetrinu en það er Daníel Imsland með hönnunarfyrirtæki sitt Dimms Design. Hann hefur lokið námi í grafískri hönnun frá Istituto Europeo di Design í Mílanó á Ítalíu. Fyrirtækið sérhæfir sig í hönnun á kynningarefni fyrir fyrirtæki og einstaklinga svo sem hönnun og gerð heimasíðna, bréfsefna, lógóa, umbúða ofl. Á heimasíðu Dimms, dimms.is , má sjá þau verkefni sem hann hefur unnið að og nálgast frekari upplýsingar um fyrirtækið hans.
Nú eru laus aðstaða fyrir einn til tvo frumkvöðla í opnu skrifstofurými. Þeir sem hafa áhuga á að sækja um aðstöðu fyrir frumkvöðlastarfsemi hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands á Höfn geta haft samband við Ara eða Björk hjá Nýsköpunarmiðstöð. Einnig er hægt að nálgast umsóknareyðublöð á heimasíðu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands nmi.is .





Skrifa athugasemd