Gróðurframvinda á Skeiðarársandi
Miðvikudaginn 14. okt. brugðu 36 nemendur og þrír kennarar frá FAS sér af bæ. Ferðinni var heitið á Skeiðarársand og í Skaftafell. Tilgangur ferðarinnar var að virða fyrir sér landmótun jökla og hefja rannsóknir á gróðurframvindu á Skeiðarársandi. Þeir sem eiga leið um sandinn hafa eflaust tekið eftir því að gróður hefur aukist verulega á undanförunum árum og þá sérstaklega birki.
Í ferðinni voru settir niður fimm reitir sem hver um sig er 25 fermetrar. Í hverjum reiti voru birki- og víðiplöntur taldar og lagt mat á gróðurþekju svæðisins. Birkiplönturnar innan hvers reits voru sérstaklega merktar og mæld hæð og ársvöxtur. Einnig var skoðað hvort ummerki væru á plöntunum eftir sauðfé eða skordýr. Hér eftir er ætlunin að fara á hverju ári og skoða sömu reiti. Fylgst verður með ársvexti trjánna, gróðurframvindu og öðru áhugaverðu.
Þó margt hafi verið um manninn í ferðinni höfðu allir nóg að gera og verkefnið gekk vel.
Við undirbúning ferðarinnar var leitað í smiðju til Þórunnar Ellenar Þórhallsdóttur í HÍ en hún skipulagði rannsóknirnar fyrir FAS. Með í för var einnig Þorvarður Árnason forstöðumaður Háskólasetursins á Höfn. Þeim er þakkað kærlega fyrir þeirra framlag.





Skrifa athugasemd