Hlaðvarpinn - auglýsir eftir umsóknum um styrki
Hlaðvarpinn, menningarsjóður kvenna á Íslandi, auglýsir nú eftir umsóknum um styrki - umsóknarfrestur er til 1. nóvember 2009 og geta umsækjendur verið konur, samtök þeirra, félög eða fyrirtæki. Nánari reglur um úthlutun er að finna á hladvarpinn.is.
Þetta verður í þriðja sinn sem úthlutað er úr sjóðnum en frá stofnun hans hafa 38 verkefni fengið styrk, alls 22,5 milljónir. Úthlutað er árlega úrsjóðnum og var stefnt að 10 milljóna króna úthlutun í hvert sinn. Í skjóli erfiðs efnahagsástands var hins vegar ákveðið að hækka upphæðina við síðustu úthlutun enda hefur fjármagn til menningarstarfsemi verið skorið niður hjá stofnunum og fyrirtækjum.
Markmið sjóðsins er að styrkja menningarstarfsemi kvenna sem beinist að því að greina, efla, varpa ljósi á og breyta stöðu kvenna í íslensku samfélagi. Með menningarstarfsemi er átt við hvers kyns listir, rannsóknir og kynningu á menningu kvenna.
Sjóðurinn er eign Hlaðvarpans ehf. og varð til við sölu húseignanna að Vesturgötu 3 í Reykjavík, sem gengu undir nafninu Hlaðvarpinn. Forsaga sjóðsins nær allt aftur til fyrrihluta 9. áratugarins. Mikil gerjun var þá í íslenskri kvennabaráttu. Vigdís Finnbogadóttir hafði verið kjörin forseti, sérframboð kvenna til sveitarstjórna og Alþingis hafði skilað glæsilegum árangri og kvennaathvarf og kvennaráðgjöf höfðu verið stofnuð í Reykjavík. Upp úr þessari deiglu spratt sú hugmynd að kaupa gömul og illa farin hús við Vesturgötu 3 og nýta sem kvennamiðstöð. Með því slógu konur tvær flugur í einu höggi, björguðu menningarverðmætum frá eyðileggingu og eignuðust hús fyrir starfsemi sína. Árið 1985 var einkahlutafélagið Vesturgata 3 ehf. stofnað af fjölda kvenna og keypti félagið húsin sama ár.
Húsin voru smám saman gerð upp og þar fór fram gróskumikil starfsemi um árabil. Upp úr aldamótum þótti sýnt að ekki væri lengur grundvöllur fyrir rekstri húsanna vegna breyttra aðstæðna og var því ákveðið að selja þau. Í samræmi við samþykktir félagsins var eignum þess varið til stofnunar menningarsjóðs kvenna. Hlaðvarpinn, menningarsjóður kvenna á Íslandi, var síðan formlega stofnaður 27. september 2007.
Nánari upplýsingar veitir Drífa Snædal formaður Hlaðvarpans í síma 695 1757





Skrifa athugasemd