Október
Þórbergssetur um vetur
Þórbergssetur um vetur
Þórbergssetur um vetur

08.10.2009 Október

Jöklar og saga, stjörnur og rómantík

 

Haustþing Þórbergsseturs verður að þessu sinni haldið laugardaginn 17. og sunnudaginn 18. október. Á þinginu verður blandað saman fræðslu, skemmtun og útiveru og komið víða við. Þingið hefst kl 13:00 á fyrirlestri Helga Björnssonar jöklafræðings ,,Frá Breiðumörk til jökulsands, mótun lands í þúsund ár” og síðan verður farið í ferðalag um Breiðamerkursand og inn í Þröng, þar sem glögglega sést hversu Breiðamerkurjökull hefur hopað hratt á síðustu árum og áratugum.  Dætur Einars ríka í Vestmannaeyjum verða síðan með skemmtilega dagskrá í máli og myndum tengda samskiptum Þórbergs og Einars ríka föður þeirra. Og til að ætla vísindunum veglegan sess á þessu málþingi þá mun Snævarr Guðmundsson  fjalla um stjörnur og óravíddir himingeimsins, og hvort sem við sjáum einhverjar stjörnur á himninum eða ekki á að æfa sig í myrkragöngu og fara upp á Helghól undir miðnætti. Á sunnudeginum ætlar Halldóra Gunnarsdóttir mannfræðingur að vera með erindi um Þórberg og ástina. Einnig verður ungur íslenskunemi með erindi tengt BA ritgerð sinni sem fjallar um Þórberg og rómantíkina. Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir er að skrá bréfasafn Þórbergs í Landsbókasafninu og segir skemmtilegar fréttir tengdar því, en síðan verða heimamenn með erindi eftir hádegi. Líkur eru á að meinlaust grín blandast dagskráinni eins og gjarnan þegar fjallað er um Þórberg og verk hans

Öllum er velkomið að sitja málþingið allt eða hluta þess.

Gistingu er hægt að fá á Hala sími 867 2900 hali@hali.is Gerði sími 478 1905 eða bjornborg@centrum.is, á Smyrlabjörgum sími 478 1072 smyrlabjorg@smyrlabjorg.is og Skálafelli sími 478 1041 skalafell@simnet.is

 

Dagskrá

Laugardagur 17. október

13:00 Setning

13:10 ,,Frá Breiðumörk til jökulsands, mótun lands í þúsund ár” Helgi Björnsson jöklafræðingur

14:00 Ferð að Breiðamerkurjökli ( Hægt að aka á eigin bíl langleiðina)

16:30 Dagskrá tengd samskiptum Þórbergs Þórðarsonar og Einars ríka ,,Þú hefðir ekki átt að bæta við

          þig nýjum bátum á meðan þú stóðst í ævisögurituninni.“  dætur Einars ríka,  Auður Einarsdóttir

          íslenskufræðingur og Sólveig Einarsdóttir framhaldsskólakennari

19:30 Kvöldverður að hætti Þórbergsseturs, Halaafurðir á borðum

21:00 Stjörnur; Snævarr Guðmundsson

22:00 Stjörnuskoðun á Helghól, myrkraganga

 

Sunnudagur 18:október

10:00 „Að elska er að yrkja fegursta ljóð í víðri veröld.“ Þórbergur og ástin. Halldóra Gunnarsdóttir
          mann- og kynjafræðingur

10.40  Þórbergur og rómantíkin;  Arngrímur Vidalín Stefánsson BA íslenskunemi Háskóla Íslands
11:20 ,,Þjer eruð aumingi - að skrifa mjer aldrei." Úr bréfum til Þórbergs.
          Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir bókmenntafræðingur
12:00 Hádegisverður, kjötsúpa og rúgbrauð með kæfu

13:00  ,,Að afbyggja karlmann:” Um sjálfsmyndir Þórbergs Þórðarsonar.

          Soffía Auður Birgisdóttir bókmenntafræðingur
13:30 Söguslóð á Suðausturlandi, kynning frá Þórbergssetri
14:00 Þingslit

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica