Ævintýraleg lopasala í sumar
Útlendingar kunna vel að meta íslenska lopann og hefur sala á honum og ullarvörum stóraukist. Lopasalan í sumar hefur verið hreint ævintýraleg segir Halldóra Ingólfsdóttir eigandi verslunarinnar Dóru á Höfn, margir erlendu ferðamannana fylltu kassa af lopa og sendu sér heim í pósti, eins er mikil sala á heimamarkaði því konurnar hér eru hörkuduglegar við prjónaskapinn eins og sjá má hér í Handraðanum.
Halldóra er ekkert að draga saman seglin þótt móti blási í verslunarmálum, hún bætir bara við vöruúrvalið og það nýjasta er skófatnaður. Ég ákvað að prufa að taka inn skó segir hún, því það voru svo margir að spyrja um þá og viðtökurnar á þeim eru svo góðar að nú er bara að auka úrvalið.
Það er erfitt að fá vörur í dag, margir heildsalar að hætta og vöruúrval ekki jafn mikið og áður, ég á þó von á meira úrvali af útivistarfatnaði og svo styttist í að jólavörurnar komi.
Efnalaug Dóru er í sama húsi og verslunin, þar unnu í sumar 14 manns. Aðalverkefnið yfir ferðamannatímann er þvottur á rúmfatnaði fyrir gististaðina á svæðinu. Efnalaugin á um 90% af þeim rúmfatnaði sem notaður er á gististöðunum hér og eru send út 750-800 rúmföt á dag yfir sumarið. Dóra segir að allir gististaðir í sýslunni nýti sér þessa þjónustu, rúmfötunum er keyrt út alla morgna alveg vestur í Geirland á hótel Núpa og þau notuðu tekin með til baka..
Um 15% aukning er í starfsemi efnalaugarinnar og verslunin gengur ljómandi vel segir Dóra. Við erum full bjartsýni á framtíðina og látum ekki allt þetta svartsýnistal og spár hafa áhrif á okkur.





Skrifa athugasemd