Október
Markaðsdagur í Pakkhúsinu
Markaðsdagur í Pakkhúsinu
Marketday in Pakkhúsið

02.10.2009 Október

Afurðir framleiðenda úr ríki Vatnajökuls á góðu verði

 

Afurðaframleiðendur verða aftur með heimamarkað á morgun laugardag í Pakkhúsinu, en hann fékk góðar móttökur síðastliðinn laugardag. Stefnt er á að halda markað með mat úr héraði alla laugardaga í vetur ef að heimamenn taka þessu áfram svona vel.

Einn af viðskiptavinum Heimamarkaðsins hafði orð á því að verðlagið  væri helmingi lægra en á markaðnum sem haldinn er í Mosfellsbæ og einnig voru gestir ánægðir með að fá svona ferskar afurðir eins og nýveiddan fisk og lífrænt grænmeti, einnig verður hægt að kaupa lambakjöt núna.

Annar viðskiptavinur hafði orð á því að markaðurinn væri nauðsynlegur fyrir einhleypa, þar sem hægt væri að versla eftir vigt og afurðir í stykkjatali.

Síðan verður haldinn stærri almennur markaður í samvinnu við menningarmiðstöðina einu sinni í mánuði og þá gefst fólki kostur á að koma með ýmsar vörur líka aðrar en matvæli sagði Rósa Björk hjá Ríki Vatnajökuls.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica