Ágúst
Leikskólar á labbi
Leikskólar á labbi
Mynd 3 af 3
1 2 3

28.08.2009 Ágúst

Lönguhólar 30 ára

 

Árið 1975 komu upp fyrstu hugmyndir sem skráðar eru um byggingu leikskóla á Höfn, það voru konur úr kvenfélaginu Tíbrá sem  fór þess á leit við Hreppsnefnd Hafnar að byggður yrði leikskóli.  Upp úr því  var skipuð byggingarnefnd leikskólans.  Árið 1976 var farið að skoða teikningar af leikskólum og annað sem tengist byggingu og reksturs leikskóla. ákvörðun var tekin um að velja teikningu eftir arkitektana Guðmund Kr Guðmundsson og Ólaf Sigurðsson frá 1975 teikningin gerir ráð fyrir þremur deildum en ákvörðun var tekin um að byrja á tveimur tuttugu barna deildum sem var fyrri áfangi byggingarinnar. Til að fjármagna bygginguna voru tekin lán hjá ýmsum félögum og fyrirtækjum.

Töluverðar tafir urðu á að hægt yrði að klár bygginguna og opna skólann og var það af sökum skorts á fjármagni og töfum hjá iðnaðarmönnum. Skólinn var svo opnaður 1. ágúst 1979.

Gunnur  Hanna  Ágústdóttir fóstra var hreppsnefnd innan handar við ráðningu fólks við skólann og var hún lengst af forstöðukona við skólann og síðar leikskólastjóri þegar nafninu fóstra var breytt í leikskólakennari.  Gunnur Hanna lét af störfum við skólann árið 1997.

Fyrstu ár skólans var leikskólinn opinn  kl 8.00-12.00 og 13.00-18.00 og börn komu með nesti að heiman.

Leikskólanum var gefið nafn árið 1982, skólinn fékk nafnið Lönguhólar eftir að starfsfólk hafði greitt atkvæði um nöfn og eftir stóðu nöfnin Lönguhólar og Kvos, að lokum greiddi rekstrarnefnd leikskólans atkvæði um þessi tvö nöfn og varð nafnið Lönguhólar hlutskarpara.

Deildirnar tvær sem voru í upphafi fengu nöfnin Stjörnudeild og Blómadeild. Fyrstu ár leikskólans gátu foreldrar verið með börn sín fjóra tíma á dag í skólanum  og börn komu með nesti með sér að heiman. Unnið var í myndlist, fín og grófhreyfingum, spilað, skoðaðar og lesnar bækur, útivera og frjálsleikur.

Fljótlega kom í ljós að tveggja deilda leikskóli fullnægði ekki  þeirri vistunarþörf sem var á Höfn á þessum tíma. Árið 1984 var farið að ræða þá hugmynd að byggja við Lönguhóla, teikning af  þriðju deildinni var til. Í október 1990 var svo þriðja deildin tekin í notkun á Lönguhólum.

Eftir að Gunnur Hanna lét af störfum árið 1997 tók Eyrún Axelsdóttir við stöðu leikskólastjóra í eitt ár.

Leikskólinn Lönguhólar á 30 ára afmæli á þessu ári, leikskólinn opnaði nánar tiltekið 1. ágúst 1979. Af því tilefni hefur starfsfólk skólans ákveðið að halda uppá afmæli leikskólans laugardaginn 29. ágúst frá klukkan 13.00 til 15.00. Þá mun öllum hafnarbúum gefast kostur á að koma í leikskólann sjá ljósmyndir úr skólastarfi, borða afmælisköku og sjá hve vel leikskólinn hefur elst. Hlökkum til að sjá sem flesta, aldrei að vita nema það verði eitthvað óvænt fyrir börnin. Með kveðju starfsfólk Lönguhóla

Leikskólinn Lönguhólar á 30 ára afmæli á þessu ári, leikskólinn opnaði nánar tiltekið 1. ágúst 1979. Af því tilefni hefur starfsfólk skólans ákveðið að halda uppá afmæli leikskólans laugardaginn 29. ágúst frá klukkan 13.00 til 15.00. Þá mun öllum Hafnarbúum gefast kostur á að koma í leikskólann sjá ljósmyndir úr skólastarfi, borða afmælisköku og sjá hve vel leikskólinn hefur elst.

Margrét Ingólfsdóttir leikskólastjóri segir mikið hafa breyst í skólanum á þessum 30 árum

fyrst hafi verið tvær deildir þ.e. fyrir og eftir hádegi og  skólatíminn 4 klst . fyrir börnin nú eru það 9 klst. sem hvert barn getur verið . Áður var lámarksaldur tveggja ára en þar sem þá var oftast langur biðlisti  voru þau mörg orðin þriggja ára þegar þau komust inn í skólann.

Með tilkomu leikskólans Krakkakots voru biðlistavandamálin nánast úr sögunni og full þörf fyrir báða skólana.  Mikið og gott samstarf er á milli skólanna og t.d. eru fastir liðir að skólarnir skiptast á heimsóknum einu sinni í mánuði.

Við höfum sl. tvö ár verið að þróa skólann okkar sem útileikskóla segir Margrét, það er þannig að við erum alveg úti tvo daga í viku  og hefur þetta fyrirkomulag gengið alveg rosalega vel, það er nær aldrei að veður hamli útiveru og fellur þetta mjög vel í kramið hjá krökkunum.

Sama aldurstakmark er í báðum skólunum og getur fólk því valið um skóla hvort því hentar betur útivistarskóli eins og Lönguhólar  eða heilsuskóli eins og Krakkakot.

Við hlökkum til að sjá sem flesta á afmælisdeginum okkar og aldrei að vita nema það verði eitthvað óvænt fyrir börnin.

Haustið 1998 tók Margrét Ingólfsdóttir síðan við stöðu leikskólastjóra og gegnir henni enn í dag. Starfsmenn við skólann eru 17 og nemendur rúmlega 50 á aldrinum eins árs til fimm ára.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica