Ágúst
Göngubrúarframkvæmdir
Göngubrúarframkvæmdir
Mynd 2 af 2
1 2

28.08.2009 Ágúst

Gönguleið milli Drápskletta og Einarslundar

 

Hægt er að velja um margar mislangar gönguleiðir í nágrenni Hafnar sem allar hafa það sameiginlegt að liggja um frábær svæði sem gaman er að ganga um. Hundaeigendur velja gjarnan Ægissíðuna þar sem hægt er að fara á bíl að svæðinu eða fara gönguleiðina frá tjaldsvæðinu sem þá tekur nokkru lengri tíma. Gönguleiðirnar um Ósland eru mikið notaðar bæði af ferðamönnum og heimamönnum og  má sjá fólk þar á öllum tímum dags enda útsýnið  einstakt.

Með ströndinni frá Sandbakka og að golfvelli er komin ný göngugata sem er aldeilis ekki nein halarófugata heldur 4 manna breiðstræti.

Nú hefur bæst við gönguleið  milli Drápskletta og Einarslundar sem starfsmenn Áhaldahúss, Mikaels og Skógræktarfélagsins eru að vinna að og er búið að setja tvær göngubrýr yfir skurði sem reynst hafa göngufólki erfiðir yfirferðar. Hlið er á annarri brúnni og er fólk beðið um loka því á eftir sér til að fé komist ekki í skógræktargirðinguna.

Rétt er að benda þeim á sem ætla að kanna nýju gönguleiðina að eins og er henta vaðstígvél best vilji menn komast þar þurrum fótum og þetta verður skemmtileg leið þegar ofaníburður verður kominn í slóðina.

 

 

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica