Námskeið í Complete Vocal Technique á Hornafirði
Söngkonan Hera Björk Þórhallsdóttir verður á Hornafirði dagana 9. - 13. september n.k. með námskeið í Complete Vocal Technique. Hera mun vinna með Hornfirska skemmtifélaginu, Kvennakór Hornafjarðar og Karlakórnum Jökli, en einnig mun hún bjóða upp á einkatíma. Það eru örfáir tímar lausir þegar þetta er skrifað en hægt er að panta hjá henni í síma: 864 3704 eða hera@herabjork.comNámskeiðin eru sniðin fyrir alla þá sem vilja bæta söngkunnáttu sína. Þau eru opin jafnt rytmískum sem og klassískum söngvurum og í lokinn eiga þátttakendur að hafa náð betri stjórn á rödd sinni. Meginmarkmið námsins er að hver söngvari nái persónulegum árangri og sjái framför aðallega í tæknilegum skilningi. Nemendum verður kennt í hópum og unnið er í andrúmslofti sem einkennist af trausti og hreinskilni. Þátttakendur munu deila með sér eigin þekkingu og reynslu í lærdómsferli sem dregur fram listræna styrkleika og veikleika hvers og eins. Þessi krefjandi og árangursríku námskeið gera söngvaranum kleift að nýta sér kunnáttu sína og leikni strax að því loknu. Páll Óskar, Friðrik Ómar, Regína Ósk, Birgitta Haukdal, Sigga Beinteins, Bryndís Ásmunds, Jóhanna Guðrún ofl. ofl. frábærir íslenskir söngvarar eru í hópi ánægðra nemenda sem hafa tileinkað sér þessa tækni!
“Ég tók 1 árs nám í CVT, og mæli hiklaust með þessari tækni. Ég náði að staðsetja ýmislegt í söngröddinni sem ég vissi ekki að ég ætti til. Allt sem var svo erfitt fyrir mig að syngja í gamla daga er núna ekkert mál. Ég hafði mjög gott af þessu, og kom sjálfum mér á óvart.” PÁLL ÓSKAR.
Complete Vocal Technique er þróuð af Cathrine Sadolin. Hún skoðaði, hlustaði og greindi allar tegundir af söng og hljóðum sem söngvarar gáfu frá sér og bar saman þá sem alltaf héldu toppgæðum í röddinni þrátt fyrir mikið álag við þá sem fljótt misstu röddina. Smá saman fór hún að sjá ákveðna eiginleika í röddinni og raddbeitingunni sem voru gegnumgangandi hvort sem sungið var rokk eða ópera. Þannig þróaðist þetta kerfi eða tækni sem unnið er eftir og hefur slegið í gegn. Cathrine segir að hún trúi því að hægt sé að framkalla öll hljóð á heilbrigðan hátt án þess að skemma röddina.
Hera Björk tók upphafi sjálf ársnám fyrir atvinnusöngvara í CVT og fór svo áfram í 3ja ára kennaranám í þessari tækni í Danmörku. Hún kláraði sumarið 2008 og flutti heim til Íslands í ár, á móti straumnum eins og hún segir, og hefur nú stofnað CVT stúdíó í Reykjavík. Þar er allir kennarar með réttindi til að kenna CVT. „ Það þýðir ekkert annað en að vera jákvæður og horfa frekar á kostina við Ísland á þessum tímum t.d. náttúruna og vatnið okkar, frekar en að vera neikvæður.“





Skrifa athugasemd