Ágúst
Busavígsla í FAS 2009
Busavígsla í FAS 2009
Mynd 1 af 7
1 2 3 4 5 6 7

27.08.2009 Ágúst

Busavígsla í FAS

Frétt af fas.is

Í morgun mátti sjá nýnema heldur undarlega til fara. Ástæða þessa undarlega klæðaburðar var sú að í dag var verið að taka þá formlega inn í skólann eða busa þá eins og margir kalla það. Eldri nemar sáu til þess að greiðsla og förðun hæfði tilefninu. Busarnir þurftu að hlýða eldri nemendum og sungu m.a. ýmis lög og gengu aftur á bak um skólann.
Fyrir hádegið þurftu busarnir að leysa ýmsar þrautir s.s að skríða eftir hálli braut og hoppa ofan í drullukar. Slökkviliðið sá svo um að þrífa mannskapinn á eftir. Í lokin voru nemendur svo boðnir velkomnir í skólann og fengu allir afhenta rós af tilefninu. 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica