Indversk kvikmyndastjarna í vandræðum
Indverskar kvikmyndastjörnur hafa verið á ferðinni um suðurlandið í síðustu viku í kvikmyndatökum. Lenti ein aðalleikkonan í vandræðum vegna búninga og var leitað hingað eftir hjálp. "Þegar það kom í ljós að hluti af búningum Trisha (aðalleikonunnar) náðust ekki út úr tolli á tilskildum tíma þegar hópurinn var við tökur við Jökulsárlón, þá var ákveðið að keyra til Hornafjarðar og kanna með búninga. Laufey í verslunni Lóninu brást vel við og lánaði aðstoðarfólki Trisha nokkur dress til þess að leyfa henni að máta fyrir næstu myndatöku daginn eftir við Dyrhólaey (það má kannski geta þess að einnig komu föt frá verslun í R.vík. en leikonan valdi fötin úr Lóninu)", segir Grétar Örvarsson talmaður íslenska hópsins.
Á meðfylgjandi myndum, má sjá Trisha í fötum sem hún valdi til nota við upptökurnar við Dyrhólaey.
Íslenski hópurinn vill þakka bæði Laufeyju Óla og Björgu Erlings fyrir aðstoðina á 11. stundu





Skrifa athugasemd