Sundlaugargestir orðnir 40 þúsund
Nýja sundlaugin á Höfn sem tekin var í notkun í vor nýtur mikilla vinsælda bæði heimamanna og gesta. Að sögn Lars J. Andréssonar sundlaugarvarðar hafa komið um 40 þúsund manns í laugina í sumar. Toppdagurinn í mætingu í laugina var þegar Humarhátíðin stóð yfir en þá komu þangað 670 manns. Þessi fjöldi dugði þó ekki til að slá út dagsmetið í gömlu sundlauginni sem sett var á 100 ára afmæli Hafnar en þá komu 700 manns í laugina. Hvernig svo sem hægt hefur verið að koma þeim fjölda fyrir í svo lítilli laug þá tókst það en ekki er líklegt að mikið hafi verið synt.
Lars segir að á rólegum dögum hjá þeim komi svona um 350 manns og núna er sundkennsla skólabarna að hefjast. Til gamans skal þess getið að í gömlu lauginni komu um 130 manns yfir sumarið og um 50 yfir veturinn. Starfsmenn í nýju sundlauginni eru 6-7 flestir þeir sömu og voru í þeirri gömlu og er unnið á tveim vöktum.




Skrifa athugasemd