Vegagerð í Hamarsfirði seinkar
Áætlað var að vinnu við nýja veginn í Hamarsfirði yrði lokið og hann tekinn í notkun 1.sept. en verkinu hefur seinkað. Að sögn Reynis Gunnarssonar eru um tvær vikur í að farið verði að leggja bundið slitlag á nýja kaflann og vonast hann til að verkinu ljúki fyrir lok september.
Verktakafyrirtækið Háfell í Reykjavík sér um þessa vegagerð.
Mikil samgöngubót verður að þessum nýja vegarkafla sem leysir af varasaman malarkafla.
Mesta ársaukning í umferð á landinu samkvæmt mælingu vegagerðarinnar í júlí var á suðaustur og austurlandi og mældist hún 11%. Ekki eru komnar nýjar tölur yfir umferðina í sumar en það er rétt síðustu dagana sem aðeins hefur dregið úr umferðinni.




Skrifa athugasemd