Ágúst
Nýi vegkaflinn í Hamarsfirðinum
Nýi vegkaflinn í Hamarsfirðinum
Mynd 1 af 2
1 2

25.08.2009 Ágúst

Vegagerð í Hamarsfirði seinkar

 

Áætlað var að vinnu við nýja veginn í Hamarsfirði yrði lokið og hann tekinn í notkun 1.sept. en verkinu hefur seinkað. Að sögn Reynis Gunnarssonar eru um tvær vikur í að farið verði að  leggja bundið slitlag á nýja kaflann og vonast hann til að verkinu ljúki fyrir lok september.

Verktakafyrirtækið Háfell í Reykjavík sér um þessa vegagerð.

Mikil samgöngubót verður að þessum nýja vegarkafla sem leysir af varasaman malarkafla.

Mesta ársaukning í umferð á landinu samkvæmt mælingu vegagerðarinnar í júlí var á suðaustur og austurlandi og mældist  hún 11%. Ekki eru komnar nýjar tölur yfir umferðina í sumar en það er rétt síðustu dagana sem aðeins hefur dregið úr umferðinni.

 

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica