Ágúst
Brúarvinnuflokkurinn við Jökulsárlón
Brúarvinnuflokkurinn við Jökulsárlón

25.08.2009 Ágúst

Endurbótum á Jökulsárbrú að ljúka

 

Nú er að ljúka endurbótum og lagfæringum á brúnni yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi og vantar aðeins tvo þurrkdaga til að hægt sé að ljúka við að mála hana. Þetta er mjög tafsamt verk segir Sveinn Þórðarson verkstjóri frá Vík, hátt rakastig og lágt hitastig hér hefur valdið okkur miklum töfum því við þær aðstæður megum við ekki mála. Einnig hefur þessi mikla umferð sem hér er orðin tafið fyrir okkur en hún hefur aukist alveg geysilega frá því við byrjuðum hér.

Sveinn segir að það sé mikið ánægjuefni að sjá lögreglu á ferðinni hér án þess að um slys sé að ræða  en það hafi þeir ekki orðið varir við frá því þeir byrjuðu þarna árið 2006.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica