Ágúst
Boðið að koma á Pecha Kucha spjall
Guðrúnu Ingóldsdóttur hönnuði og listakonu hefur verið boðið að koma og kynna sandkertahönnun sína í Listasafni Reykjavíkur á Menningarnótt í Hafnarhúsinu á milli klukkan 21 og 23.
Þeir sem koma fram eru víðsvegar að úr heiminum og munu kynna gesti viðburðarins lífsýn þeirra og vinnu.
Fyrirlesarar kvöldsins verða meðal annars:
Framtíðarsalan Hildur og Hildur - Creating Future Visions to get you thinking about what kind of Future you want.
Gingó - Artist
Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir – Vöruhönnuður Umemi
Gústaf Hannibal – Rithöfundur
Guðrún Lilja - Vöruhönnuður
María Rut Reynisdóttir – frá Gogoyoko
Ralph Knuth - The Spoken Project
Þorsteinn Úlfar Björnsson – Framtíðarsinni, höfundur og ljósmyndari með meiru
Guðrún Tryggvadóttir – Hönnuður og framkvæmdastjóri natturan.is
Anna Lewerth – Iðnhönnuður, sýnir myndir frá því að hafa unnið við hönnun í Afríku.
Pecha Kucha hófst í Tokyo frá árinu 2003 og var viðburður á vegum Klein Dytham Arkitekta og er í yfir 165 borgum í heiminum í dag. Pecha Kucha er japanska og þýðist lauslega yfir á íslensku sem “létt spjall” (á ensku chit chat). Formið er í stuttu máli á þann veg að valið er fólk víðsvegar að til að kynna það sem það hefur þörf fyrir að kynna (áhugamál, starf, viðhorf eða tómstundir eða vangaveltur) með því að sýna skýrur (slides) og tala (eða ekki tala), syngja eða spila tónlist undir þar sem hver skýra tekur c.a 20 sekúndur, 20 skýrur alls eða 20x20 format, allt í allt 6,40 mín alls.
Formatið er skýrt, létt og er eina krafan að skapandi kraftar viðkomandi fái að njóta sín til botns. Þema er ákveðið hverju sinni. Viðburðurinn fyllir hús hvar sem það er sett upp í heiminum og skapar jákvæða stemningu, fróðlegar uppákomur og væna innspýtingu af fróðleik og tengslamyndun sem passar vel við þörfina í þjóðfélaginu.





Skrifa athugasemd