Ágúst
Flugeldasýning á Jökulsárlóni 2009
Flugeldasýning á Jökulsárlóni 2009
Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson
Mynd 5 af 5
1 2 3 4 5

19.08.2009 Björgunarfélag : Fréttir

Stórkostleg flugeldasýning

 

Um eitt þúsund og fimmhundruð manns voru á árlegri  flugeldasýningu við Jökulsárlón  sl. laugardagskvöld sem er margfalt á við fyrri sýningar.

 Sýningin var stórkostleg, meiri og enn stórkostlegri en nokkru sinni áður en þetta var í 10. sinn sem Einar Björn staðarhaldari við Jökulsárlón og Björgunarfélag Hornafjarðar standa fyrir flugeldasýningu á jökum í lóninu og á Jökulsárbrúnni. Veður var eins og best verður á kosið, logn og 7 stiga hiti. Mikill ís er í lóninu og jakar risastórir og mynntu á íshallir í ljósadýrðinni.

 

Ferðamönnum sem fara í siglingu um lónið hefur fjölgað um ca. 15 % það sem af  er sumri og eru nú um 50 þúsund. Einar Björn segir að venjan sé að loka 15. sept. en nú gæti orðið opið til 1.okt.  ef aðsókn helst og ef hann fær starfsmenn áfram. Starfsmenn við lónið í sumar voru 30.

Siglingar hafa gengið vel þó mikið af ísjökum  hafi verið í lóninu því óvenju mikið hefur brotnað úr jöklinum í vor og sumar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica