Ágúst
Stórkostlegt Meistaramót
Hér á Sindravöllum fór fram glæsilegt Íslandsmeistaramót í frjálsum íþróttum um helgina. 191 keppendur voru skráðir á mótið og er þetta mót með stærri mótum sem haldin eru á Íslandi.Keppendurnir frá USÚ stóðu sig frábærlega vel það unnust 4 silfur og 5 brons.
Sigrún Salka Hermannsdóttir sem keppir í flokki 11 ára stelpna vann silfur í kúluvarpi hún varpaði kúlunni 7.95m, silfur í 800m á tímanum 2.58.27 mín. Síðan vann hún brons í langstökki stökk 4,06m og með því stökki setti hún nýtt USÚ met.
Siggerður Aðalsteinsdóttir vann silfur í 800m á 2.36.28 mín. og María Birkisdóttir brons í sama hlaupi á tímanum 2.37.97mín. Það var gaman að horfa á þetta hlaup þar sem 2. og 3. sætið féll USÚ í skaut.
Guðlaug Jóna Karlsdóttir vann brons í kúluvarpi 14 ára stelpna með kast upp á 9.03 m.
Síðan unnu boðhlaupssveitirnar 1 silfur og 2 brons. Boðhlaupssveit 11 ára stelpna vann silfur, í sveitinni voru Hildur Ósk Hansdóttir, Sigrún Salka Hermannsdóttir, Ingibjörg Lúcía Ragnasdóttir og Ingibjörg Valgeirsdóttir.
Sveit 12 ára stelpna vann brons, í sveitinni hlupu Anna Birna Elvarsdótti, Anna Soffía Ingólfsd., Alrún Irene Stephens og Inga Kristín Aðalsteinsdóttir. Sveit 14 ára stelpna vann líka brons. Þá sveit skipuðu Guðlaug Jóna Karlsdóttir, María Birkisdóttir, Siggerður Aðalsteinsdóttir og Ljósbrá Dögg Ragnarsdóttir
Síðan var boðsmót haldið á sama tíma og voru þar 2 greinar, 100m hlaup karla og þrístökk kvenna. Jóhanna Ingadóttir var að reyna við nýtt íslandsmet, henni tókst það því miður ekki en Sveinbjörg Zophoníasdóttir keppti og setti nýtt USÚ met með stökki upp á 11.76 m en gamla metið var 10.87 m.
Starfsmenn mótsins fengu mikið lof fyrir gott og vel skipulagt mót, enda stóðst tímaseðill í alla staði.




Skrifa athugasemd