Ágúst
Nýveiddur stórlax úr Selá í Álftafirði
Nýveiddur stórlax úr Selá í Álftafirði

14.08.2009 Ágúst

Góð laxveiði

 

Laxveiði í Selá í Álftafirði og Laxá í Nesjum hefur gengið vel og sérstaklega hefur verið mjög góð veiði í Selánni. Laxagengd í Selá hefur aukist síðustu árin og svona til að ýta undir þá þróun hafa laxar verið hrognakreistir á haustin og hrognin alin yfir veturinn og sleppt í ána á vorin. Í fyrra sumar veiddust um 150 laxar í Selá.

Sjógönguseiði eru sett í Laxá á hverju vori og hefur gengið vel að byggja upp laxastofninn  í ánni og sl.  sumar veiddust þar um 200 laxar. Stærsti laxinn úr Laxá var 22 pund og sá sem veiddi hann er hótelhaldarinn í Nesjum Guðjón Pétur Jónsson.

Guðjón Pétur segir að rigningarnar á dögunum hafi alveg bjargað laxveiðinni hér og ástandið sé betra en t.d. fyrir vestan og norðan þar sem vatn skorti í árnar.  Laxveiðin byrjar einum mánuði seinna hér en annarsstaðar og er opin út ágúst sem er besti veiðitíminn hér. Til að fá veiðileyfi í Selá er hægt að hafa samband við Guðjón Pétur en um veiðileyfi í Laxá sér Veiðiþjónustan Strengir.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica