Ágúst
Bláber í Óslandi
Það eru farin að spretta bláber í friðlandinu okkar Óslandi og meira að segja orðin fullþroskuð. Þetta eru vissulega góðar fréttir og í framtíðinni geta kannski börnin á Höfn skroppið út í Ósland í berjamó en eins og er þurfum við nokkuð langt til að komast í almennilegan berjamó sérstaklega í bláberin.
Um síðustu helgi voru bláberin í Lóni orðin stór og bragðgóð og þar sem skoðun fór fram virtist vera mikið af þeim. Það var að sjá að mikið væri af krækiberjum en heldur eru þau smá ennþá og safalítil.





Skrifa athugasemd