Steypu á bryggju lokið
Í gær var lokið við að steypa bryggjuplanið á nýju hafskipabryggjunni í Álaugarey. Verktaki er Mikael ehf. á Höfn. Verkið tók 5 vikur og aðeins er eftir að ganga frá ljósastaurum auk smá frágangs við bryggjuna sem lýkur á næstu dögum. Í bryggjuplanið sem er 4200 ferm. fóru 850 rúmm. af steypu og 60 tonn af járni. Kostnaður á hlut Mikaels ehf. við bryggjuna er 55 milljón kr. og skyldi verkinu vera lokið fyrir 1.sept.
Gunnar Gunnlaugsson er framkvæmdastjóri Mikaels ehf og starfslið hans eru sjö úrvals menn, eins og hann orðaði það, sem lengi hafa unnið hjá fyrirtækinu.
Gunnar segir að næst liggi leiðin vestur til Brjánslækjar í brúarsmíði og því næst austur í Skriðdal þar sem þeir ætla að byggja þrjár brýr .




Skrifa athugasemd