Jakastíflan brostin
Frétt af mbl.is og vegagerdin.is
Samkvæmt Sveini Þórðarsyni, brúarverkstjóra hjá Vegagerðinni, þá brast jakastíflan undir brúnni yfir Jökulsá á Breiðamerkurlóni í gær eins og búist var við þegar flæddi að.
Á vef Vegagerðarinnar segir að stórir jakar festust á grjótþröskuldi undir brúnni og röðuðust þar margir saman. Vatnið komst þó í rennum sitt hvoru megin við stífluna en á tímabili fór mjög stór jaki undir miðja brúna og voru ekki nema einn og hálfur till tveir metrar eftir í brúargólfið.
Grjótþröskuldurinn fyrir innan brúna er hugsaður til að stórir jakar strandi þar fyrir innan og haldist í lóninu. Hættan er að stóri jakar skemmi brúna. Árið 2006 var bætt í þröskuldinn en samkvæmt nýjum mælingum hefur hann lækkað um fjóra metra á þremur árum. Þar sem nú er stórstraumt eiga stóri jakar því möguleikann á því að komast þarna undir. Á vegáætlun fyrir 2009 var sett fé til að styrkja grjótþröskuldinn en efnahagsástandið hefur sett það sem margt annað í uppnám.
Telja margir að hlýnun jarðar sé þess valdandi að jökullinn brotnar niður og bráðnar á sívaxandi hraða. Í Daily Telegraph, bresku dagblaði, er umfjöllun um hlýnun jarðar og þar er birt myndaröð Ragnars Sigurðssonar ljósmyndara af bráðnun Breiðamerkurjökuls en hann kveðst aldrei hafa séð annað eins á þrjátíu ára ferli sínum. Myndaröð Ragnars á vefsíðu Daily Telebgraph, sem er stórbrotin, má nálgast hér. (mbl.is, vegagerdin.is)





Skrifa athugasemd