Drunur og hávaði við Jökulsárlón
Við liggur að jakastífla sé núna við brúna á Jökulsá á Breiðamerkursandi og er um eins og hálfs metra fall á vatninu þar sem það kemur út úr stíflunni. Sveinn Þórðarson verkstjóri brúarvinnuflokksins við Jökulsá segir að mikill hávaði og drunur hafi fylgt ferð jakanna yfir efri grjót-þröskuldinn sem er nokkru ofan við brúna og þar til þeir strönduðu á neðri grjót þröskuldinum sem er við brúna.Hávaðinn var slíkur að sumir héldu að jarðskjálfti væri að hefjast. Líkur eru á að jökunum skoli til hafs á flóðinu í nótt þar sem stórstreymt er en um tveggja metra hæðarmunur er á flóði og fjöru í lóninu.
Grjótþröskuldarnir voru settir í ána fyrir nokkrum árum til að hindra jakaburð og koma í veg fyrir að áin græfi úr bökkunum við brúna. Þessar hindranir hafa gefist vel en þar sem þær hafa eyðst nokkuð stendur til að bæta á þær í haust. Mikið er af stórum og flottum jökum í lóninu og því megum við eiga von á einstaklega glæsilegri ljósasýningu næsta laugardagskvöld.





Skrifa athugasemd