Ágúst
Landsmót USÚ Sauðárkróki 2009
Landsmót USÚ Sauðárkróki 2009
Mynd 4 af 5
1 2 3 4 5

05.08.2009 Ágúst

Úrslit frá Unglingalandsmótinu

1 Landsmótsmet, 2 USÚ met, 6 gull, 4 silfur og 4 brons unnust á Unglingalandsmótinu í frjálsum á Sauðárkróki

 

Landsmótsmetið setti Sveinbjörg Zophoníasdóttir í langstökki. Hún stökk 5.70 m og setti þar með USÚ met, einnig setti hún USÚ met í 100 m hlaupi, hljóp á 12.98 sek. Vann síðan silfur í hástökki, stökk 1.61 m og gull í kúluvarpi kastaði 11.36 m.
Fannar Blær Egilsson vann gull í 800 m. á 2.09.57 min, Sigrún Salka Hermannsdóttir vann gull í 600 m. á 2.01.17 mín og brons í langstökki með 3.97 m. sem er bæting, svo vann hún brons í hástökki, stökk 1.21 m. sem er persónulegt met.

Jón Snorri Þorsteinsson vann gull í Kúluvarpi kastaði 12.77 m. og silfur í spjótkast kastaði 45.94 m. sem er veruleg bæting hjá honum, svo vann sveit USÚ gull í 4x100 m boðhlaupi sveina á tímanum 51.94. Sveitina skipuðu Einar Ásgeir Ásgeirsson, Eggert Helgi Þórhallsson, Júlían Bent Egilsson og Örvar Þór Guðnason og að sögn áhorfenda var mjög gaman að sjá USÚ sveitina koma fyrsta í mark. Siggerður Aðalsteinsdóttir vann silfur í 800m á 2.32.47 mín, Guðlaug Jóna Karlsdóttir vann brons í Kúluvarpi varpaði kúlunni 9.93 m sem er persónuleg bæting og Örvar Þór Guðnason vann brons í langstökki stökk 5.45 m. en hans besti árangur er 5.78 m á Humarmótinu og síðan varð hann 4. í hástökki.
27 keppendur kepptu fyrir hönd USÚ í frjálsumíþróttum og stóðu allir sig vel og margir bættu sinn árangur, þó svo að þeir lentu ekki í þremur fyrstu sætunum, bara að komast í úrslit í mörgum greinum er afrek út af fyrir sig. Það er líka ánægjulegt hvað áhugi á frjálsíþróttum hefur vaxið jafnt og þétt hér á Hornafirði síðustu ár, þar spila örugglega margt inn í, góð aðstaða, frábærir þjálfarar og stuðningur foreldra við starfið. Þess má geta að helgina 15.-16. ágúst verður haldið hér á Höfn Meistaramót Íslands í aldurshópnum 11-14 ára og viljum við hvetja fólk til að vera með, alltaf er þörf á fleiri sjálfboðaliðum og ef þig langar til að aðstoða þá er bara að hafa samband við Örnu í síma 847-4035.

Önnur úrslit urðu þessi:

 

Í motokrossinu áttum við 5 keppendur.

Í flokki 85cc karla kepptu þeir:

Finnur Ingi Jónsson lenti í  9. sæti

Þorgils Snorrason lenti í  12. sæti

Ingólfur Jónsson lenti í 13. sæti 

Í flokki 125cc karla kepptu þeir:

Pálmi Freyr Gunnarsson lenti í  5. sæti

Sævar Knútur Hannesson lenti í  11. sæti

Það var einnig keppt í  kvenna flokki og heyrðist okkar fólki að við mundum sennilega eiga keppendur þar á næsta ári, svo mikil var stemmingin hjá  áhorfendum.  
 

Í knattspyrnunni áttum við þó nokkuð marga keppendur.

Í flokki 11-12 ára kk keppti blandað lið USÚ/UMSE og lentu þeir í 5. sæti

Í flokki 11-12 ára kvk keppti blandað lið Sindra skvísur/UDN og lentu þær í 5. sæti

Í flokki 13-14 ára kvk keppti blandað lið Sindra gellur/UÍA/Neisti Hofsósi og lentu þær í 5. sæti

Í flokki 17-18 ára kk áttum við 2 keppendur í Power sem var blandað lið allsstaðar að af landinu. Þeir lentu í  6. sæti.  
 

Í körfuboltanum vorum við með 2 lið, í flokki 11-12 ára stráka og svo í flokki 15-16 ára stráka.  Eitthvað var blandað í liðunum en meirihlutinn var úr okkar röðum.


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica