Júlí
Björgunarsveit að störfum
Björgunarsveit að störfum
Björgunarsveitin Húnar aðstoðar fastan bíl í Nýjadalsá á Sprengidalsleið í sumar

30.07.2009 Júlí

Annasamur júlímánuður hjá björgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar

Fréttatilkynning frá Landsbjörgu

 

Sjálfboðaliðar Slysavarnafélagsins Landsbjargar hafa aldrei áður upplifað eins annasaman júlímánuð og í ár. Útköll þennan mánuð eru orðin tæplega 100 og eru þá ekki talin með allar þær fjölmörgu aðstoðabeiðnir sem björgunarsveitir á hálendinu hafa sinnt. Útköllin eru af mörgum toga en flest útköllin hafa tengst smábátum sem lent hafa í vandræðum og aðstoð við ferðamenn sem ratað hafa í ýmsar ógöngur. Auk þessara verkefna hafa björgunarsveitir m.a. aðstoða við sjúkraflutninga, slökkvistörf og leitað að týndu fólki.

Hálendisverkefni Slysavarnafélagsins Landsbjargar hefur rækilega sannað að full þörf er á viðbragði á hálendinu yfir sumarið. Félagið er með björgunarsveiti á fjórum stöðum á landinu þ.e. á Hveravöllum, Nýjadal, Öskju og Landmannalaugum og hafa þessar sveitir haft í nógu að snúast í allt sumar. Þessar sveitir verða á hálendinu fram yfir Verslunarmannahelgina  til að aðstoða og leiðbeina ferðamönnum.

Helstu ástæður þess hversu mikið hefur verið að gera hjá björgunarsveitunum má m.a. rekja til eftirtalinna þátta.  Ríkisstjórnin gaf út leyfir fyrir strandveiðum í sumar og fóru þá margir bátar á sjó sem höfðu legið óhreyfðir í langan tíma og komu upp ýmsar bilanir þegar farið var að nota bátana. Íslendingar eru orðnir mun duglegri að ferðast upp á hálendið á bílum sínum og eru margir óvarnir hálendisferðum þar innanum. Aldrei hafa fleiri íslendingar gengið á fjöll og þar hafa ferðamenn verið að meiðast og einnig hafa nokkrir villst. Erlendir ferðamenn hafa sjaldan verið duglegri að sækja hálendið heim bæði gangandi og akandi. Ferðamenn þurfa oft aðstoð og leiðbeiningar þar sem staðhættir á Íslandi eru mjög frábrugðnir því sem þeir eru vanir. Veðurfar og landslag á landinu er einstak og framandi. Algengt er að rekast á vanbúna ferðamenn upp á hálendinu.

Ein stærsta ferðamannahelgi sumarsinns er framundan og margir á ferð. Slysavarnafélagið Landsbjörg hvetur alla landsmenn til að fara varlega og huga vel að eigin öryggi. Sjálfboðaliðar félagsins munu eins og alltaf standa vaktina tilbúnir að bregðast við útköllum. Viðbragð félagsins er mikið en tæplega 100 björgunarsveitir eru starfandi hringinn í kringum landið og að auki rekur félagið 14 öflug björgunarskip sem eru dreifð með strandlengjunni. Björgunarsveitir á hálendinu eru einnig til staðar eins og í allt sumar og munu aðstoða og leiðbeina ferðamönnum. 

Á tímu sparnaðar og aðhalds hefur hlutverk sjálfboðaliða Slysavarnafélagsins Landsbjargar aldrei verið mikilvægara. Sjálfboðaliðarnir eru ávalt tilbúnir að leggja fram sína vinnu án endurgjalds alla daga ársins hvenær sólarhringsins sem er. Til gamans má geta að  bak við hverja klukkustund í útkalli björgunarmanns liggja u.þ.b 10 klukkustundir í þjálfun og fjáraflanir.

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica