Júlí
Glaðbeittir "Rauðhausar " á ferð
Þessir heiðursmenn þeir Ómar Ragnarsson og Einar Vilhjálmsson voru mættir við þjónustumiðstöð N1 hér á Höfn á sunnudagsmorguninn.Þeir eru , eins og komið hefur fram í fréttum , á hringferð um landið. Það sem gerir þá ferð svo sérstaka er að farartæki þeirra er knúið metangasi , en það er unnið úr lífrænum íslenskum úrgangi. Þeir félagarnir stilltu sér upp fyrir aðvífandi vegfarenda og leyfðiu honum að smella af mynd áður en þeir héldu för sinni áfram suður á bóginn. Við óskum þeim góðrar ferðar og fylgumst með hvernig ferðinni miðar umhverfis landið
-g.





Skrifa athugasemd