Júlí
Formleg opnun á Ólympíugarðinum í Tampere
Ólympíugarðurinn var formlega opnaður hér í Tampere í gær. Um er að ræða lítinn garð á háskólasvæðinu sem er hugsaður sem minnisvarði um Ólympíuhátíðina sem nú fer fram í Tampere í Finnlandi. Hvert land sendi einn íþróttamann sem tók þátt í athöfinni og hjá Íslandi var það Sveinbjörg Zophoniasdóttir úr frjálsíþróttum sem fékk að afhjúpa einn af Ólympíuhringjunum í garðinum. (isi.is)





Skrifa athugasemd