Júlí
Sveinbjörg Zophoníasdóttir
Sveinbjörg Zophoníasdóttir
13. besta í heiminum í sjöþraut stúlkna
Mynd 1 af 5
1 2 3 4 5

14.07.2009 Júlí

Sveinbjörg Zophoníasdóttir 13. besta í heiminum í sjöþraut stúlkna

Sveinbjörg Zophoníasdóttir lenti í 13. sæti í sjöþraut á heimsmeistaramóti unglinga í frjálsum íþrótturm sem fram fór í Bressanone á Ítalíu um helgina og hlaut 4609 stig.
Þetta er mjög góður árangur hjá henni, hún bætti sig í 3 greinum af 7 og var að auki við sitt besta í 3 greinum. Hún setti t.d. Úlfljótsmet í hástökki, stökk 1.70 m, þá kastaði hún kúlu 11.40 m og stökk 5.61 m í langstökki svo nokkrir einstakir árangrar séu nefndir.
Keppendur í sjöþrautinni voru 15 en á mótinu voru um 1.350 þátttakendur og því var þetta mjög stórt mót og allir þeir bestu í heiminum. Mótið hófst á miðvikudegi og stóð fram á sunnudag. Sveinbjörg fór út með foreldrum sínum og var það mikill stuðningur fyrir hana. Margir foreldrar voru á meðal áhorfenda. Að keppa á svona móti er mikil reynsla fyrir ungt fólk og er misjafnt hvernig íþróttamaðurinn bregst við í svona aðstæðum.
Sveinbjörg verður þrjá daga heima áður en hún fer aftur út á Ólympíumót Evrópuæskunnar sem fram fer í Tampere í Finnlandi í næstu viku, hún keppir þar í kúluvarpi og langstökki.
Við óskum henni góðs gengis á því móti.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica