Hnappavallaklifurmaraþon 2009
Hnappavallamaraþon síðasta sumars tókst gríðarlega vel og ætti að vera öllum enn í fersku minni. En í fyrra var haldið klifurmaraþon á Hnappavöllum helgina 19.-20. júlí. 40 bestu klettaklifrara Íslands mættu á Hnappavelli í Öræfasveit til þess að klifra (rauðpunkta) allar 93 klettaklifurleiðirnar í sameiginlegu maraþonátaki. Heildarlengd sem reynt var við var 1280 m., eða jafn margir klettametrar og á sjálfum El Capitan í Yosemite þjóðgarðinum í Bandaríkjunum. Sennilega hefur varla verið klifrað svona mikið á heilu sumri eins og klifrað var þessa einu helgi. Það hefði verið ærið markmið í sjálfu sér að reyna að klifra allar leiðirnar á einu sumri.
Nú er blásið í maraþonlúðrana að nýju. Að þessu sinni verður viðfangsefnið með öðru sniði eða sólarhrings maraþonklifur. Klifrað verður frá kl. 9 að morgni 11. júlí til kl. 9 að morgni þess 12. júlí. Keppt verður í liða- og einstaklingsflokkum. Liðin reyna að safna sem flestum stigum með því að klifra sem mest á 24 klst. Stig eru gefin út frá getu hvers klifrara, þannig að allir eigi allir svipaða möguleika! Helgin 18.-19. júlí verður höfð til vara ef ekki viðrar þessa helgi. Opnað var fyrir skráningu mánudaginn 29. júní. ALLIR hjartanlega velkomnir að fylgjast með, en til þess að taka þátt þurfa klifrarar að vera vanir að klifra og sjá alveg um sig sjálfir. Skráning er nauðsynleg og lýkur henni á morgun.
Hér má finna upplýsingar um maraþonið (pdf) og inn á klifurhusið.is eru nákvæmari upplýsingar, fréttir og myndir frá í fyrra.




Skrifa athugasemd