Júlí
Nýjar kartöflur
Þann 4. júlí voru nýjar íslenskar kartöflur teknar upp til sölu á Seljavöllum. Trúlega eru Hornfirðingar og gestir Humarhátíðar fyrstir til þess að njóta nýrra íslenskra kartaflna þetta árið. Hjalti Egilsson kartöflubóndi á Seljavöllum segist aldrei hafa tekið upp kartöflur svona snemma og þakkar hann það góðu tíðarfari.





Skrifa athugasemd