Júlí
Stemning_a_Humarhatid_2003
Stemning á Humarhátíð 2003
Stemning á Humarhátíð (úr myndasafni)

04.07.2009 Júlí

Gleðilega Humarhátíð!

Kæru Hornfirðingar og gestir! nú er komið að því!
Humarhátíðin verður sett formlega í dag, betri en nokkru sinni fyrr, þar sem hornfirsk menning er höfð í fyrirrúmi. Eins og flestir hafa tekið eftir er hátíðin nú þegar komin af stað en haldnir hafa verið tónleikar og opnaðar sýningar í vikunni. Þjóðakvöld Kvennakórsins var í gærkvöldi og mótocross sýning.

Engar formlegar hverfahátíðir eru á skipulaginu en líklegt er að fólk komi saman þrátt fyrir það og fjölmenni svo í skrúðgönguna sem fer frá tjaldsvæðinu kl. 20. Lúðrasveit Hornafjarðar leikur Dixieland tónlist og krakkar úr Humarsmiðjunni taka þátt. Svo tekur við stanslaus gleði og fjör!

Hátíðin er sett formlega á nýju hátíðarsvæði fyrir framan gömlu saltfiskskemmurnar kl. 21 á móti grasi gróinni brekku sem hægt er að sitja í.

Sölubásarnir opna í kvöld og eru í Kartöfluhúsinu í ár og er áhersla lögð á hornfirska framleiðslu og söluaðila.

Fjölbreytt dagskrá er í boði um helgina og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Eftir setningarathöfnina og hátíðardagsskránna verður harmonikkustemning í Akureynni, Silfur á Vikinni, Rokk í Hvítasunnukirkjunni, Haukur Þorvalds í Pakkhúsinu og Hornafjarðarkvöld í Sindrabæ. Þar koma fram hljómsveitirnar Mæðusveitin Sigurbjörn, Kusk, Undur, Parket, Minsk og Haukur þorvalds. Svo má ekki gleyma humrinum en hægt verður að gæða sér á humarkræsingum við Hleinina, Akureynna, hjá Kokkinum, Hafnarbúðinni, og á öllum veitingastöðum.

Á morgun hefst dagskráin kl. 9 með sund og golfmóti. Síðan er þéttskipuð dagskrá allan daginn og svo dagskrá um kvöldið á hátíðarsviðinu. Á laugardagskvöldinu verður varðeldur kl. 23 og hljómsveitin Kusk í Pakkhúsinu, Minsk í Akureynni, og svo Parket í íþróttahúsinu með stórdansleik frá miðnætti fyrir 18 ára og eldri.

Á sunnudeginum heldur dagskráin áfram með sýningum, íþróttamóti og fleiru.

Dagskránna má nálgast hér.                                                                         

Góða skemmtun!

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica