Þyrluflug á Höfn
Árið 1971 fæddist ''ekki svo lítill drengur" yfir 20 merkur og 64 cm og var skírður, Karl Jóhann Guðmundsson. Þessi ''litli'' drengur ólst upp við ósköp venjulegar aðstæður á þeim tíma á Höfn og hugurinn var mikill hjá drengnum. Alinn á hörkunni og þeirra tíma meðulum, tók hann atvinnuflugmannspróf á þyrlu hjá Þyrluþjónustunni árið 1998 og Flugskóla Íslands árið 2000.
Starfar hann í dag sem flugmaður, flugkennari og flugrekstrarstjóri hjá Þyrlufélaginu, þyrla.is, sem er í eigu annars ungs manns frá Hornafirði sem heitir Reynir Þór Guðmundsson ættaður frá Svínafelli í Nesjum. Þyrlufélagið sérhæfir sig í ljósmynda og kvikmyndaflugi, ásamt því að kenna til einkaflugsmannsprófs á þyrlu. Þessir tveir glæsilegu synir Hornafjarðar ætla að bjóða sveitungum sínum og öðrum gestum á Hátíð á Höfn að kynnast því hvernig sú magnaða tilfinning er að svífa frjáls eins og fuglinn! Þyrlan verður staðsett á Höfn yfir Humarhátíðarhelgina og jafnvel lengur til að vekja athygli á þyrluflugnámi.
Hvernig hægt sé að komast í þyrlutúr með þeim félögum verður nánar auglýst.





Skrifa athugasemd