Júlí
Tekið á móti Þóri SF 77
Tekið á móti Þóri SF 77
Mynd 2 af 11
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11

01.07.2009 Júlí

Þórir SF 77 kominn heim

 

Þórir SF 77 nýtt skip Skinneyjar Þinganess og hið síðara sem smíðað var í Taiwan kom til Hornafjarðar í gær. Öll skip fyrirtækisins að undanskyldu Þinganesinu sem var í slipp, sigldu fánum prýdd til móts við  Þóri og  tóku á móti honum skammt vestan við Hvanney. Síðan sigldu öll skipin  til hafnar með nýja Þóri í fararbroddi. Það var áhrifamikil og hátíðleg stund þegar þessi glæsilegi skipafloti sigldi inn Hornafjarðarós inn í höfnina og var þeim vel fagnað af bæjarbúum. Sennilega hefur aldrei verið annar eins fjöldi af bílum í Óslandi þar sem útsýni er yfir innsiglinguna eins og í gær þegar bæjarbúar fögnuðu komu nýja skipsins og tóku þátt í þessari glæsilegu móttöku hjá Skinney Þinganesi sem verður lengi í minnum höfð.

Í gær bauð Skinney  Þinganes bæjarbúum og öðrum viðstöddum í fiskiréttaveislu á bryggjunni við Miklagarð og einnig voru nýju skipin Þórir og Skinney til sýnis. Eitt skipa fyrirtækisins, Steinunn SF, kom í gær í fyrsta sinn til heimahafnar en hún stundar veiðar út frá suðvesturlandi.

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica