Þórir SF 77 kominn heim
Þórir SF 77 nýtt skip Skinneyjar Þinganess og hið síðara sem smíðað var í Taiwan kom til Hornafjarðar í gær. Öll skip fyrirtækisins að undanskyldu Þinganesinu sem var í slipp, sigldu fánum prýdd til móts við Þóri og tóku á móti honum skammt vestan við Hvanney. Síðan sigldu öll skipin til hafnar með nýja Þóri í fararbroddi. Það var áhrifamikil og hátíðleg stund þegar þessi glæsilegi skipafloti sigldi inn Hornafjarðarós inn í höfnina og var þeim vel fagnað af bæjarbúum. Sennilega hefur aldrei verið annar eins fjöldi af bílum í Óslandi þar sem útsýni er yfir innsiglinguna eins og í gær þegar bæjarbúar fögnuðu komu nýja skipsins og tóku þátt í þessari glæsilegu móttöku hjá Skinney Þinganesi sem verður lengi í minnum höfð.
Í gær bauð Skinney Þinganes bæjarbúum og öðrum viðstöddum í fiskiréttaveislu á bryggjunni við Miklagarð og einnig voru nýju skipin Þórir og Skinney til sýnis. Eitt skipa fyrirtækisins, Steinunn SF, kom í gær í fyrsta sinn til heimahafnar en hún stundar veiðar út frá suðvesturlandi.




Skrifa athugasemd