Júlí
Jökulsárlón (Úr myndasafni ©EBE)
Jökulsárlón (Úr myndasafni ©EBE)
Jökulsárlón (Úr myndasafni ©EBE)

01.07.2009 Júlí

Jökulsárlón tekið við sem dýpsta vatn Íslands

Eftir framhlaup Breiðamerkurjökuls, þar sem allt að 600-700 metrar hafa brotnað úr honum á köflum, er Jökulsárlón orðið dýpsta vatn Íslands. Einar B. Einarsson, eigandi ferðaþjónustunnar Jökulsárlóns, komst nýverið lengra inn að jöklinum en áður og dýptarmældi við hinn nýja jaðar. Reyndust vera 284 metrar niður á botn.

Hingað til hefur Öskjuvatn talist dýpst, 217 metrar. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni hafa mælingar á jöklinum áður gefið til kynna að hann nái svona djúpt en eftir framhlaup er vatnið dýpra en áður. (mbl.is)

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica