Kvikmyndaver á Horni
Vinna við byggingu víkingaþorps sem byggt er fyrir töku víkingakvikmyndar í landi Horns er vel af stað komin og vinna þar um 20-30 manns. Þetta gengur vel og er allt á áætlun segir Finni Jóhanns hjá kvikmyndafyrirtækinu True North sem þarna er að verki. Við erum komnir vel á stað og heimamenn hafa tekið okkur mjög vel og eru okkur hjálplegir og við erum með eins marga heimamenn við verkið og hægt er. Þorpið samanstendur af nokkrum húsum, dýrahúsum, smiðjum og þrælahúsum og er áætlað að búið verði að koma húsunum upp í haust og verða þau svo látin veðrast í vetur.
Þegar byggingarvinnu í kvikmyndaverinu lýkur verður gert hlé fram á næsta vor og er áætlað að byrja myndatökur í apríl en þær taka 3-4 mánuði. Leikstjóri verður Baltasar Kormákur og um 500 manns munu koma að töku myndarinnar. Þá er spurningin hvort Hornfirskir karlar sem sækjast eftir hlutverkum í myndinni þurfi ekki að nota tímann til að láta hár sitt vaxa á herðar niður og skegg niður á bringu, segir Finni það ekki verra, annars hermi heimildir að þessir víkingar hafi verið hin mestu snyrtimenni og svo verði þarna líka hlutverk konur og börn og hann bætir við að víst sé að þetta verði heljarinnar partý.





Skrifa athugasemd