Heimamarkaðsbúðin opnar
Á morgun miðvikudag opnar heimamarkaðsbúð á neðri hæð Pakkhússins. Búðin verður opin í júlí og ágúst alla virka daga frá 11 – 17.
Að búðinni koma matvælaframleiðendur í Ríki Vatnajökuls sem hafa unnið saman undir matvælaklasa Ríki Vatnajökuls. Búðin verður rekin af Sívari Árna en hann er ekki nýgræðingur í þeim málum enda hefur hann rekið fiskbúð í Bestfisk síðustu sumur.
Reynt verður að hafa sem fjölbreyttast framboð af vörum alla daga og frá sem flestum framleiðendum. Mikið verður lagt uppúr ferskum fiskréttum og verða til réttir á grillið fyrir heimamenn og ferðamenn. Þá má nefna bæði svínakjöt, andakjöt og svo styttist í kartöfluuppskeru og annað grænmeti.
„Þegar matvælaklasinn byrjaði að hittast var mikill áhugi fyrir því að koma á fót einhvers konar markaði eða búð þar sem smáframleiðendur gætu komið vörum sínum á framfæri. Á vormánuðum fékkst svo styrkur frá Ferðamálastofu til þess að framkvæma verkið. Tilgangur búðarinnar er líka að tryggja aðgengi ferðamanna og heimamanna að mati úr nærumhverfinu. Margar rannsóknir sýna hvernig verslun við framleiðendur í heimabyggð skilar fjármunum í meira magni aftur inní samfélagið, þannig að í raun græða allir þegar verslað er við Heimamarkaðsbúðina“, segir Bjarni Ólafur Stefánsson hjá Matís sem hefur unnið að verkefninu.





Skrifa athugasemd