Júní
Skinney-Þinganes séð yfir höfnina

29.06.2009 Júní

Heimkoma Þóris SF-77

 

Nýsmíðin Þórir SF-77 kemur til heimahafnar þriðjudaginn 30. júní.  Búist er við Þóri  um hádegisbilið eftir 6 vikna siglingu frá Taiwan. 

Í tilefni af heimkomu Þóris munu skip fyrirtækisins taka á móti honum fyrir utan Hornafjarðarós og fylgja honum síðasta spölinn inn til hafnar.

Við fögnum þessum gleðiáfanga í endurnýjun skipastóls fyrirtækisins með því að hafa skip okkar opin til sýnis fyrir almenning eftir kl. 15:00.  Boðið verður upp á léttar veitingar og fiskrétti úr framleiðslu okkar frá kl. 15:00 – 18:00 á Miklagarðsbryggju. 

Þeir bátar sem verða inni vegna löndunar leggja af stað til móts við Þóri um kl 10.30 og fólki velkomið að sigla með. 

Við vonumst til að sem flestir sjái sér fært að mæta til að gleðjast með okkur þennan dag.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica