17. júní í Nesjum
Eins og undanfarin ár hélt Ungmennafélagið Máni í Nesjum 17. júní hátíðlegan. Hátíðahöldin hafa þó aldrei verið mjög formleg og alltaf lítið um ræðuhöld. Á því var engin undantekning þetta árið. Dagurinn hófst í nokkurri úrkomu um klukkan 13:30 við heitu pottana í Hoffelli, þar sem stigið var um borð í sirkusvagninn sívinsæla sem ferjaði hátíðargesti á áfangastað. Ekið var inn að Geitafelli þaðan sem gengið var upp að hinu mikilfenglega Efstafellsgili. Þar var áð í um hálfa klukkustund og náttúran skoðuð sem og útsýnið. Þegar allir höfðu fengið sinn ráðlagða dagskammt af útsýni héldu gestir aftur niður í Geitafell þar sem farið var í leiki og borðaðar grillaðar pylsur. Að dagskrá lokinni hélt víkingahljómsveitin Krauka tónleika, en meðlimir þeirrar hljómsveitar spila af fingrum fram á hljóðfæri sem eru smíðuð eftir hljóðfærum frá víkingatímanum í bland við nútímalegri hljóðfæri.
Þegar allir höfðu fengið nægju sína af pylsum, leikjum og almennri útiveru stigu gestir aftur í sirkusvagninn sem ferjaði þá til baka að bílunum. Allir voru sammála um að dagurinn hafði heppnast vel þrátt fyrir misjafnt veður.
Stjórn Ungmennafélagsins Mána vill koma á framfæri þökkum til allra sem hjálpuðu til við að gera daginn eins skemmtilegan og hann varð og þá sérstaklega þeim Ingibjörgu og Þrúðmari í Hoffelli fyrir leiðsögn og almenna hjálpsemi.
f.h. Umf Mána
Sigurður Óskar Jónsson, ritari.





Skrifa athugasemd